20. maí '09 | Reykjavík | sigga Er ekki hætt! Hef ekki gefist upp á þessari síðu sem mér þykir svo vænt um. Hér inni á myndasíðunni eru alltof margar myndir til þess að ég færi að gefa þetta upp á bátinn. Myndirnar eru rétt tæplega 9000 talsins og hér höfum við Lez bloggað síðan 4.sept 2001. Hér fyrir neðan er einmitt mitt fyrsta blogg á skidebange, síðunni sem minn heittelskaði bjó til handa mér og gaf mér í afmælisgjöf á sínum tíma. Ekki svo löngu eftir að ég sagði við hann "Hallur til hvers þarftu þetta net eiginlega". En nú er sá hinn sami, minn heittelskaði blezi, búin að lofa því að fara í gegnum síðuna svo ég og við getum farið að hlaða hér inn myndum og blogga aftur á ný. Svo ekki gefast upp á skidebange því hún fer ekki neitt, aldrei!
Tékkið svo á blettinum www.flickr.com/siggaella
Lífið er gott og guð er góður! -Siggí von stardust
Hér er fyrsta færslan, blessunin.
4. sept. ´01 | Skövde | sigga Nú skrifa ég loksins eitthvað á forsíðuna.
Hæ allir! Þá er ég kominn til Svíþjóðar aftur eftir ágætt sumar á Íslandi og frábæra dvöl í Kaupmannahöfn. Raggi bóðir hans Halls kom með okkur út og var með okkur eina viku í Köben og svo eina viku hérna í Skövde. Í Kaupmannahöfn fórum við saman á Red Hot Chili Peppers tónleika sem voru alveg meiriháttar og eiginlega ólýsandi. Fyrsta hljómsveitin á sviðið voru Papa Roach sem voru mjög góðir, síðan steig pönk guðinn Iggy Pop á sviðið og öskraði á okkur í svona klukkutíma. Þegar Iggy var búinn stigu loks goðin á svið og spiluðu gömul og ný lög í svona 70 mínútur. Þess má geta að mér tókst að smygla myndavélinni minni inn á tónleikana og tók nokkrar myndir og m.a. þessa mynd hér til hliðar sem er af Flea. Fleiri myndir af tónleikunum eru svo væntanlegar inn á síðuna. Þessar vikur sem Raggi var hjá okkur eru búnar að vera frábærar og vonandi eigum við eftir að fá fleiri heimsóknir :-) Nú er Raggi farinn og hversdagslífið tekið við, Hallur er byrjaður í skólanum og ég vonast til þess að byrja fljótlega líka. Svo að lokum bendi ég öllum á gestabókina mína! Bæjó, Sigríður að Skaufstöðum ytri, Sléttuhreppi hinum sænska. Komment: 0
|
17. jan. '09 | Reykjavík | sigga 11.jan - Ammælisstelpan Elsku kúturinn okkar er orðin 4.ára. Við skulum í tilefni þess smæla framan í heiminn eins og Snæfríður Hekla gerir alla daga :)
Lífið er gott og guð er góður!
- Sigga, Hallur og Snæfríður Hekla Svarfdal 4.ára stelpa. Komment: 0
|
Skrifa við 11.jan - Ammælisstelpan
22. des. '08 | Reykjavík | sigga Gleðileg jólajól.... Lörvägsfamiljen óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Höfum það öll yndislega gott um jólin og á nýja árinu og verum góð hvort við annað.
Lífið er gott og guð er góður!
- Siggí stardust, Lez von blez und Znö za bjútíKomment: 0
|
Skrifa við Gleðileg jólajól....
7. des. '08 | Reykjavík | sigga Helena og Valdi eru hjón og kysstast upp á títiprjón :) Nú eru þau orðin hjón, bara sisvona eins og ekkert væri sjálfsagðara og drengurinn heitir Eyþór í höfuðið á föðurömmu sinni henni Þórey eða Tótu eins og flestir kölluðu hana. Skírnar- og brúðkaupsdagurinn var alveg yndislegur og við fjölskyldan erum mjög fegin að við komumst til að fagna með þeim. Hér er mynd sem ég tók af turtildúfunum og held svo upp á. Guð hvað þau eru eitthvað happy......
Ást, ást og meiri ást!
Siggí stardustKomment: 0
|
Skrifa við Helena og Valdi eru hjón og kysstast upp á títiprjón :)
|